27.07.2011 19:17
Þeir eru orðnir nokkrir trébátarnir sem fengið hafa nýtt hlutverk í ferðamannaiðnaðinum síðustu ár. Það eru góðar fréttir að menn geri upp fallega báta til að nota í skoðunarferðir með túrista. Lundi er einn af þessum bátum, en hann lá í Reykjavíkurhöfn snemma morguns um daginn og beið eftir farþegum.
950. Lundi RE 20. © Ingólfur Þ.
25.07.2011 21:05
Jæja gott fólk þá er maður mættur aftur eftir gott frí frá tölvunni. Hef nú gert ýmislegt skemmtilegt síðustu vikur og að sjálfsögðu fékk myndavélin að fljóta með. Held að það sé við hæfi að kanna viðbrögð síðugesta með einni getraun svona fyrst eftir fríið.
Hver á þessa blökk ?

2677. Bergur VE 44. © Ingólfur Þ 19.06.2011 17:40
Þessar myndir eru frá Valdimar Hreiðarssyni á Suðureyri af því þegar línubáturinn Ási sigldi upp í fjöru við brjótinn í Súgandafirði fyrir nokkrum árum. Sá sem átti landstímið dottaði víst og því fór sem fór. Litlar eða engar skemdir urðu á bátnum og náðist hann fljót út.
Ási á strandstað. © Valdimar Hreiðarsson.
13.06.2011 12:11
Sanddæluskipið Perla hefur um helgina verið að störfum í innsiglingarennunni hér á Suðureyri. MIkill sandur hefur safnast þar undanfarin ár og var hún orðin frekar grunn og stærri skip ekki átt gott með að komast inn. Vestrinn frá Patreksfirði tók t.d. niðri og sat fastur á sandrifi hér fyrir nokkrum árum þegar hann kom inn til löndunnar og losnaði þegar féll að. Perla dælir sandinum sem upp kemur í uppfyllingu fyrir utan brjótinn sem gerð var sérstaklega fyrir þetta verkefni.
Perla við gamla brjótinn. © Ingólfur Þ.
Rörið tengt fyrir dælingu.
Byrjað að dæla sandi.
12.06.2011 16:46
Í síðustu viku kom upp eldur í strandveiðibátnum Dagrúnu þar sem hún lá í höfn á Suðureyri. Talið er að kveiknað hafi í út frá rafmagni og urðu talsverðar skemmdir á tækjum og innréttingum í stýrishúsi. Einnig er allt svart af sóti og svo er nú slökkviduftið ekki til að bæta hlutina þegar svona kemur upp. Ég geri nú fastlega ráð fyrir að kapp verði lagt á að Dagrún verði klár þegar strandveiðar á svæði A hefjast aftur 1 júlí n.k.
2134. Dagrún ÍS 9. © Ingólfur Þ.
Ekki fallegt að sjá.
09.06.2011 14:18
Vegna nægra verkefna á öðrum sviðum en hér á síðunni hefur ekki mikið komið inn undanfarið. Þeir sem sætta sig við það fyrirkomulag halda áfram að kíkja við. Þeim sem hafa gaman af 10-20 myndum af sama koppnum á dag er bent á aðra síðu sunnar á landinu.
2082. Rakel ÍS 4. © Ingólfur Þ.
29.05.2011 18:09
Þessar myndir eru af facebook síðu Heimis Tryggvasonar skipstjóra á Páli Pálssyni. Þarna sést Páll sigla hringinn í kringum MSC Poesiu þar sem hún lá á Prestabugtinni á Ísafirði í dag. Poesia er 293 metrar á lengd og 36 metrar á breidd en Páll er 57,8 metrar á lengd og 9,5 metrar á breidd.
1274. Páll Pálson ÍS 102 og MSC Poesia.© Heimir Tryggvason.
29.05.2011 16:52
Það fjölgaði heldur betur í Norðurtanganum á Ísafirði í morgun þegar MSC Poesia lagðist á Prestabugtina. Poesia er næst stærsta skemmtiferðaskip sumarsins sem kemur á Ísafjörð. Mikið af fólki var því á götum bæjarins og mikið að gera í verslunum. Með skipinu eru um 2500 farþegar og 960 manna áhöfn. Það má því segja að það fjölgi um helming í Ísafjarðarbæ í dag.
MSC Poesia. © Ingólfur Þ.
Léttabátar Poesiu. © Ingólfur Þ.
28.05.2011 11:49
Rakst á þessa skemmtilegu mynd. Þessi drengur byrjar greinilega snemma að stunda sjóinn, og er rétt útbúinn. Gaman væri nú ef einhver þekkti kauða.
Ungur sjóari.
27.05.2011 17:46
Í gærkvöldi kom trukkur að sunnan með Glóa KE 92 hingað til Suðureyrar. Hann mun í sumar róa héðan á strandveiðar. Jens Daníel Holm mun róa bátnum, en mágur hans Vignir Bergmann er eigandinn. Glói er gamall norskur björgunarbátur sem byggt hefur verið hús á.
7192. Glói KE 92. © Ingólfur Þ.
26.05.2011 07:47
Hér sjáum við Ólaf í höfn á Suðureyri ný skveraðan og flottann. Sagan segir að þegar báturinn var afhentur nýr hafi Ólafur Friðbertsson útgerðarmaður sagt að hann vonaði að nafni sinn yrði jafn oft fullur og hann sjálfur. Þessi bátur er í dag Kristrún ll RE 477.

256. Ólafur Friðbertsson ÍS 34. © Úr safni Róberts Schmidt.
21.05.2011 12:25
Hér eru flottar myndir úr safni Magnsar Þórs Hafsteinssonar af því þegar Höfrungur lll AK 250 tekur Ýmir HF 343 í tog á úthafskarfamiðunum. Ýmir er ekki lengur á Íslenskri skipaskrá, heldur Rússneskri. Höfrungur hins vegar er enn í fullri drift hjá HB Granda, en að vísu orðinn blár á litinn.
1902. Höfrungur AK 250. © Gunnar Freyr Hafsteinsson.
1880. Ýmir HF 343. © Gunnar Freyr Hafsteinsson.
Taugin gerð klár. © Gunnar Freyr Hafsteinsson.
Ýmir kominn í tog. © Gunnar Freyr Hafsteinsson
19.05.2011 17:17
Hér sjáum við vetrarmynd frá Suðureyri. Kannski við hæfi nú þegar veturinn minnir á sig !!. Held án þess að vera viss að sá fremri sé Sif ÍS og sá aftari hugsanlega Friðbert Guðmundsson ÍS. Töluverður snjór er þarna í fjöllunum og greinilega hávetur.

Suðureyrarbátar um vetur. © Mynd úr safni Róberts Schmidt.