Færslur: 2012 Febrúar
22.02.2012 06:38
Hrafn GK á miðunum
Margar flottar myndir hef ég sett hér inn sem Bergþór Gunnlaugsson skipstjóri á Hrafni GK 111 hefur tekið af togaraflotanum. Á þessum myndum hinsvegar er Bergþór við stýrið, því hér sjáum við Hrafn GK í kaldaskít á dögunum. Það var Friðrik Gígja skipverji á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 sem tók þessar myndir. Ég hef nú fengið leyfi til að byrta mundir frá strákunum á Júllanum og set ég þær í sér möppu í myndaalbúmi hér að ofan.






1628. Hrafn GK 111. © Myndir Friðrik Gígja.




Skrifað af Ingólfur Þ
19.02.2012 13:55
Jón Grunnvíkingur gerir við trollið
Hér sjáum við Frigga Jó (Jón Grunnvíking) bæta trollið á brygjunni á Ísafirði. Friggi hefur verið að veiða í þorskeldið hjá þeim bræðrum Hallgrími og Davíð Kjartanssonum á Ísafirði. Það er gamla Fáskrúðsfjarðarsmíðin Ramóna ÍS sem er skipið hans Frigga og kannast margir við þann bát hér vestra sem Báru ÍS 66 sem Óli málari gerði út í fjölda ára á skel og rækju m.a.

Friggi Jó að bæta trollið. © Heimir Tryggvason.


1148. Ramóna ÍS 840. © Heimir Tryggvason.
Skrifað af Ingólfur Þ
16.02.2012 10:44
Nýr Orri ÍS
Hér er mynd af nýja Orranum ÍS 180 sem Eiríkur Böðvarsson útgerðarmaður hefur fest kaup á. Ekki veit ég nú hvað Eiríkur ætlar sér að gera bátinn út á, en hann hefur skverað hann flott til og allt annað að sjá bátinn. Þessi bátur er kominn vel til ára sinna og var fyrst afturbyggður. Frægastur varð hann þegar hann var notaður til að smigla miklu magni af víninu Sénever til landsins og var lengi vel kallaður Sénever af gárungunum.

923. Orri ÍS 180. © Magnús Jónsson.

Skrifað af Ingólfur Þ
14.02.2012 17:33
Er Valgerður BA seld ?
Heyrði í dag að hugsanlega væri Valgerður BA að færast eitthvað vestar á firðina. Sagan segir að Lotna á Flateyri sé að kaupa hana og setji minni bát í þeirra eigu upp í kaupverðið. Valgerður er öflugur dragnótabátur sem hefur haft frekar lítið að gera síðustu misseri eftir að nánast ómögulegt varð að fá leigðan kvóta og gera út á það. Valgerður landaði reglulega hjá okkur í Íslandssögu á sínum tíma og munaði svo sannarlega um það í vinnslunni.

2340. Valgerður BA 45. © Ingólfur Þ.

Valgerður að landa á Suðureyri.
Skrifað af Ingólfur Þ
09.02.2012 18:59
Góður dagur á rækjunni
Það var oft gott kropp á rækjunni í djúpinu þó að bátar og troll væru ekki eins stór og nú til dags. Hér sjáum við Tryggva þara með Gissur Hvíta hálf fullan á heimleið eftir góðan dag.

Gissur Hvíti á rækjuveiðum. Myndir úr safni Heimis Tryggvasonar.



Skrifað af Ingólfur Þ
06.02.2012 15:27
Gamli Orrinn í slipp í Reykjavík
Hér sjáum við gamla Orrann ÍS Norðurtanginn hf keypti frá Frakklandi árið 1995. Tanginn var svo sameinaður inn í Básafell sem lét breyta skipinu í það horf sem það er í núna.
Aðeins var hægt að heilfrysta fisk um borð í Orra. En hann fór til Spánar þar sem hann var lengdur um 12 metra og breytt í fullkomið rækjuvinnsluskip, sett var í hann ný ljósavél og skipt um gír og skrúfu til að auka togkraftinn. Hann er með þrjú togspil og getur því dregið tvö troll. Í honum er fullkomin rækjuvinnslulína og var skipið með afkastamestu rækjutogurum landsins þegar þessum endurbótum lauk.

Ontika EK 0101. © Magnús Jónsson.

Eitthvað hefur hann verið að sigla í ís sýnist mér.
2242. Orri ÍS 20 fyrir breytingar. © Snorrason.is
Skrifað af Ingólfur Þ
04.02.2012 13:27
Tveir bátar í fjörunni á Brjánslæk
Þann 19 september árið 1981 gerðist það að tveir bátar slitnuðu upp af legufærum í Vatnsfirði á Barðaströnd og rak þá upp í fjöru. Þetta voru bátarnir Halldór Sigurðsson ÍS 14 og Gissur Hvíti ÍS 114 en þeir voru á hrefnuveiðum og var henni landað á Brjánslæk hvar eigendurnir áttu vinnsluhús. Bátarnir skemmdust báðir það mikið að þeir voru dæmdir ónýtir. Haldór Sigurðsson hét fyrst Framtíðin GK 475 og var smíðaður í Reykjavík 1916. Gissur Hvíti hét fyrst Höfrungur VE 238 og var smíðaður í Vestmannaeyjum 1921.






456. Gissur Hvíti ÍS 114. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.


548. Halldór Sigurðsson ÍS 14. © Úr safni Heimis Tryggvasonnar.


Skrifað af Ingólfur Þ
01.02.2012 18:21
Fyrsta veiði Gyllis ÍS
Hér eru skemmtilegar myndir af fyrstu veiðiferð Gylllis ÍS 461. Þessi ferð var prufuferð og varð aflinn heldur rýr eða einn ræfilsfiskur !! Eins og fram hefur komið hefur afli þessa skips heldur lagast síðan þessi prufutúr var farinn.




Gyllir ÍS prufaður fyrir afhendingu. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.



Afli dagsins !!
Skrifað af Ingólfur Þ
- 1
Flettingar í dag: 289
Gestir í dag: 132
Flettingar í gær: 669
Gestir í gær: 321
Samtals flettingar: 757746
Samtals gestir: 229288
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 15:03:49
