15.05.2012 19:33
Tappatogarinn Björgvin ÍS 301
Hér eru skemmtilegar myndir frá Sæmundi Þórðarsyni teknar af og um borð í tappatogaranum Björgvin ÍS 301 sem gerður var út frá Suðureyri fyrir um 40 árum. Ég þekki ekki mennina sem sjást en ef einhver gerir það þá væri gaman að fá það í umræðuna.

27. Björgvin ÍS 301. © Myndir Sæmundur Þórðarson





Skrifað af Ingólfur Þ
14.05.2012 07:37
Álsey vantar málningu
Nú þegar loðnuveiðum er lokið gefst smá tími til að hressa uppá útlit flotans. Álsey VE er orðinn frekar ljót og lá við bryggju í Reykjavík á dögunum. væntanlega að bíða eftir plássi í slippnum.

2772. Álsey VE 2. © Magnús Jónsson.
Skrifað af Ingólfur Þ
10.05.2012 21:37
Nýliði á strandveiðum !!!
Sá fáheyrði atburður gerðist hér á Suðureyri nú í vor að nýliði hóf útgerð í hinu margrómaða strandveiðikerfi. Það er Jóhann Daníelsson verkstjóri hjá Klofningi sem keypti sér gamlan Færeying með tveimur Elliðarúllum og skellti sér á skak. Afli hjá strandveiðibátum hefur verið tregur hér vestra fyrstu dagana, en glæðist vonandi með hækkandi sól.


6215. Emilía ÍS 315. © Ingólfur Þ.

Jói Dan að gera klárt á skakið.

Gamli Bukhinn stendur fyrir sínu.
Skrifað af Ingólfur Þ
09.05.2012 15:35
HB-Grandaskipin í slipp
Þá er ég kominn heim eftir smá frí í borginni. Byrja á að setja hér inn syrpu af myndum frá Magnúsi Jónssyni af skipum HB-Granda sem hafa verið í slipp í Reykjavík í vor hvert af öðru. Þarna má sjá tvö af elstu skipum flotans, nótaskipin Lundey NS 14 og Víking AK 100 sem bæði eru komin á sextugsaldurinn.Ennig má sjá þrjá af frystitogurum félagsins.

220. Víkingur AK 100. © Myndir Magnús Jónsson.


1308. Venus HF 519.



1902. Höfrungur lll AK 250.


2203. Þerney RE 101.




155. Lundey NS 14.

Skrifað af Ingólfur Þ
29.04.2012 14:36
Vestfirsk framleiðsla sett um borð í Stjána Ebba ÍS
Fyrirtækið Sæstál hér á Suðureyri hefur í nokkur ár hannað og smíðað línuspil, beitningatrektar og uppstokkara í báta. Aðallega hefur verið horft á minni línubáta undir 15 tonnum. Það er Guðmundur Karvel Pálsson sem hannar og smíðar þennan búnað. Þetta hófst allt á því að hann smíðaði útbúnað í eigin báta sem hann hefur gert út frá Noregi síðustu ár ásamt syni sínum. Talsverð reynsla er því komin á þetta og hefur þetta komið mjög vel út. Nú síðustu daga hefur verið unnið að uppsetningu á búnaði í Flateyrarbátinn Stjána Ebba ÍS en áður hafði samskonar búnaður farið í annan Flateyrarbát Garðar ÍS.







2515. Stjáni Ebba ÍS 56. © Ingólfur Þ.

Beitningatrektin.

Uppstokkarinn.


Skrifað af Ingólfur Þ
28.04.2012 10:34
Trefjar smíða bát fyrir norskt rannsóknarfyrirtæki
Trefjar í Hafnarfirði eru að ljúka smíði á plastbát sem fer til fyrirtækis sem starfar í rannsóknum í norska olíuiðnaðinum. Þessi bátur sem er mjög ólíkur öðrum bátum Trefja hingað til mun verða notaður til viðgerða á köplum sem notaðir eru til að rannsaka setlög í botni olíusvæða. Báturinn er með öflugum Jet drifbúnaði og nær 30 sm hraða. Báturinn var settur á flot og prufaður um daginn og þá náði Magnús Jónsson þessum myndum fyrir síðuna. Ekki fékkst leyfi til að mynda inni í bátnum, en ekkert mál að mynda hann af bryggjunni. Eins og sést er hann með öfluga stuðpúða allan hringinn og mun væntanlega eitthvað mæða á þessum þegar hann kemur í norðursjóinn.








Hér sjáum við þessa nýsmíði í vagninum. © Myndir Magnús Jónsson.

Hvorki eru skrúfur né stýri á honum heldur svokallað Jet þar sem sjórinn knýr hann áfram og sér um að beygja honum.

Hér sést hvernig þetta virkar.

Það er eitthvað töff við þennan nýja bát.

Vindur fyrir kapla á dekkinu á bátnum.


Skrifað af Ingólfur Þ
25.04.2012 18:09
Konungur rokksins á strandveiðar
Það er greinilegt að það styttist í að strandveiðar hefjist, en það er miðvikudaginn 2. maí n.k. Um síðustu helgi fékk ég mér bíltúr um svæðið og myndaði nokkra strandveiðibáta sem verið er að gera klára. Hér má meðal annar sjá konung rokksins Presley sjálfan. Skemmtilegt nafn það en til gamans má geta þess að sama útgerð á einnig samskonar bát sem heitir Jagger eftir öðrum stórsöngvara.
Perlubáturinn Viðar ÍS 500 er svo einn nýjasti báturinn í flota Bolvíkinga. Þetta númer er kunnuglegt fyrir súgfirðinga en Sigurvon sem var gerð út héðan í áratugi var einmitt ÍS 500.

7334. Presley ÍS 18. © Ingólfur Þ.

6737. Erna ÍS 59. © Ingólfur Þ.

2493. Viðar ÍS 500. © Ingólfur Þ.

7266. Hrafntinna ÍS 150. © Ingólfur Þ
Skrifað af Ingólfur Þ
23.04.2012 07:55
Villi Magg ÍS 87
Hér kemur mynd af kúfiskveiðibátnum Villa Magg nýkomnum til heimahafnar á Suðureyri 1. maí 1988. Báturinn var smíðaður var hjá Damen shipyards í Corinchem Hollandi. Það var Bylgjan hf á Suðureyri sem lét smíða skipið skipið, og var hann gerður út í nokkur ár frá Suðureyri. Villi Magg var svo seldur til Flateyrar þar sem hann fékk nafnið Æsa ÍS.87. Skipið fórst í Arnarfirði 25.júlí 1996 og með því tveir menn. Fjórir úr áhöfninni komust í björgunarbát eftir að einn þeirra hafði kafað undir skipið og náð að opna einn af björgunarbátunum. Hér er ítarleg umfjöllun í Sjómannablaðinu Ægi frá því 1988.

1784. Villi Magg ÍS 87. © Bjarni Baldursson.
Skrifað af Ingólfur Þ
22.04.2012 12:28
Breytt Lúða tekin til kostanna
Ívetur hafa farið fram umtalsverðar breytingar á þessum bát. Búið er að slá honum út að aftan til að auka flot í honum. Þá var sett önnur og mun stærri vél í hann. Nýtt rafmagn og eitthvað fleira var einnig gert. Gunnlaugur Gunnlaugsson eigandi bátsins var að prufu sigla honum í gærmorgun á pollinum og um sundin þegar ég var að rúnta á bryggjunni. Hann fer svo á strandveiðar þegar þær hefjast á slaginu 2. maí.





6130. Lúða ÍS 266. © Ingólfur Þ.



Skrifað af Ingólfur Þ
20.04.2012 18:56
Þegar Elín Þorbjarnar fékk 100 tonna halið.
Hér eru myndir af því þegar Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700 fékk 100 tonna hal af þorski í flottrollið. Það er með ólíkindum að rúm 80 tonn af því náðust um borð og eins og sjá má er dekkið nánast smekkfullt.

1482. Elín Þorbjarnardóttir ÍS 700. © Sæmundur Þórðarson.

Strákarnir taka flottrollið.

Það er mok hjá körlum.

Þá er best að koma þessu niður.


Elín Þorbjarnar við brjótinn í Súgandafirði.
Skrifað af Ingólfur Þ
19.04.2012 08:16
Kristján ÍS 122
Kristján ÍS 122 sem Maggi Snorra gerði lengi út frá Bolungavík er hér á dragnót í Patreksfjarðarflóanum. Hann var þegar þetta er tekið í leigu á Tálknafirði og það var Tryggvi Ársælsson sem var með hann.Á þessum myndum er hann að taka gott hal af þorski og karlarnir virðast hinir ánægðustu með aflann. Þessi bátur var smíðaður á Akureyri árið 1973. Hann heitir í dag Örn ÍS 31 og er skráður á Ísafirði.

1303. Kristján ÍS 122 í Patreksfjarðarflóa. © Níels A. Ársælsson.

Múkkinn glaður með aflann.

Skrifað af Ingólfur Þ
18.04.2012 21:16
Sléttanes ÍS 808
Hér eru skemmtilegar myndir af Sléttanesinu ÍS sem smíðað var á Akureyri árið 1983. Þessar myndir eru teknar fyrir austan land þar sem skipið er að koma úr smugunni. Eitthvað hefur verið tregt hjá þeim í þetta skiptið. Strákarnir á Hálfdáni Í Búð ÍS fóru á Júllu í Búð sem var léttabátur Dána dasa yfir í Sléttanes. Þetta skip var flaggskip Þingeyringa allt þar til að Fáfnir gekk inn í Básafell á Ísafirði. Skipið var svo selt til Grindavíkur og heitir í dag Hrafn GK 111.

1628 Sléttanes ÍS 808. © Magnús Samúelsson.

Skrifað af Ingólfur Þ
17.04.2012 18:35
Mok á verslunarmannahelgi
Það var oft mikið fiskirí á togaranum Dagrúnu ÍS 9 frá Bolungavík. Dagrún ásamt Heiðrúnu sá um að afla hráefnis fyrir frystihúsið í Bolungavík. Hér eru myndir af stóru hali sem Dagrún fékk á sunnudegi á verslunarmannahelginni 1984. Dagrún var gerð út frá Bolungavík í rúm 20 ár frá því hún kom nýsmíðuð frá St. Malo í Frakklandi árið 1974.
.

1410. Dagrún ÍS 9. © Guðjón Bjarnason.

1506. Heiðrún ÍS 4 og 1410. Dagrún ÍS 9. © Guðjón Bjarnason.

Stórt hal á dekkinu á Dagrúnu á sunnudegi um
verslunarmannahelgi 1984. © Hálfdán Óskarsson


Tekið frá öðru sjónarhorni © Þorleifur Ingólfsson.
Skrifað af Ingólfur Þ
17.04.2012 06:24
Víkararnir eru að róa í steinbítinn
Nú eru strákarnir á Fríðu Dagmar búnir að róa henni í rúman mánuð. Ekki hef ég heyrt annað en að hún hafi komið vel út í þessum legum. Það styttist í að annar svona bátur komi til Bolungavíkur því nú er verið að leggja lokahönd á nýjan Hrólf Einarsson ÍS. Eins hafa heyrst raddir um að þeir kunni hugsanlega að verða enn fleiri en þessir tveir. Nú er steinbítsvertíðin í fullum gangi hér fyrir vestan og lítið annað að hafa. Það er helst á smá bletti á Skálavíkinni sem hann er að gefa sig til eins og undanfarnar vertíðir. Eins hafa bátarnir verið að róa bæði austur og vestur fyrir í leit að meiri afla, allt frá svæðinu út af Blakknum og alla leið austur fyrir Horn.



2817. Fríða Dagmar ÍS 103 kemur úr róðri. © Bjarki Friðbergsson

Skrifað af Ingólfur Þ
16.04.2012 06:34
Sannir heiðursmenn
Hér koma myndir af tveimur mönnum sem báðir eru látnir. Vagn Margeir Hrólfsson skipstjóri á Hauki ÍS fórst ásamt tengdasyni sínum í róðri 18. desember 1990. Aggi var alltmúligt maður eins og sagt er um menn sem geta gert alla hluti. Hann spilaði á nikku og var hrókur alls fagnaðar. Hann klippti fólk og lagði fyrir það teppi ef svo bar undir. Hann gerði svo alltaf út Haukinn frá því ég man eftir mér, á rækju og línu á veturna og sigldi með ferðamenn á sumrin. Óskar Hálfdánsson réri með Agga og eru þessar myndir frá þeim árum. Óskar var einn besti og heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst um æfina. Við störfuðum saman í Björgunarsveitinni í Bolungavík. Óskar tók okkur ungu mönnunum alltaf sem jafningjum þótt hann væri mun eldri og reyndari. Hann kenndi okkur margt í þeim verkefnum sem sveitin tók að sér sem maður býr enn að í dag. Óskar hafði líka góðan húmor og gaman var að vera með honum, hvort sem var í dósatalningu eða á ferðalögum. Óskar lést fyrir nokkrum árum. Hálfdán sonur Óskars byrjaði ungur að fara með þeim á sjóinn og eru þessar frábæru myndir frá honum.






Guð blessi minningu þessara heiðursmanna sem fóru báðir allt of snemma og skildu eftir stór skörð í samfélaginu í Bolungavík.

Óskar að leggja línuna. © Myndir Hálfdán Óskarsson.


Aggi og Haddi byrjaðir að draga.

Aggi á goggnum og Haddi með vænan þorsk.

Hér eru þeir komnir á rækju í Djúpinu. Óskar við spilið.

Aggi tekur á móti pokanum.
Skrifað af Ingólfur Þ
Flettingar í dag: 289
Gestir í dag: 132
Flettingar í gær: 669
Gestir í gær: 321
Samtals flettingar: 757746
Samtals gestir: 229288
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 15:03:49
