06.02.2012 15:27

Gamli Orrinn í slipp í Reykjavík

Hér sjáum við gamla Orrann ÍS Norðurtanginn hf keypti frá Frakklandi árið 1995. Tanginn var svo sameinaður inn í Básafell sem lét breyta skipinu í það horf sem það er í núna. 
Aðeins var hægt að heilfrysta fisk um borð í Orra. En hann fór til Spánar þar sem hann var lengdur um 12 metra og breytt í fullkomið rækjuvinnsluskip, sett var í hann ný ljósavél og skipt um gír og skrúfu til að auka togkraftinn. Hann er með þrjú togspil og getur því dregið tvö troll.  Í honum er fullkomin rækjuvinnslulína og  var skipið með afkastamestu rækjutogurum landsins þegar þessum endurbótum lauk. 

Ontika EK 0101. © Magnús Jónsson.


Eitthvað hefur hann verið að sigla í ís sýnist mér.


2242. Orri ÍS 20 fyrir breytingar. © Snorrason.is

04.02.2012 13:27

Tveir bátar í fjörunni á Brjánslæk

Þann 19 september árið 1981 gerðist það að tveir bátar slitnuðu upp af legufærum í Vatnsfirði á Barðaströnd og rak þá upp í fjöru. Þetta voru bátarnir Halldór Sigurðsson ÍS 14 og Gissur Hvíti ÍS 114 en þeir voru á hrefnuveiðum og var henni landað á Brjánslæk hvar eigendurnir áttu vinnsluhús. Bátarnir skemmdust báðir það mikið að þeir voru dæmdir ónýtir. Haldór Sigurðsson hét fyrst Framtíðin GK 475 og var smíðaður í Reykjavík 1916. Gissur Hvíti hét fyrst Höfrungur VE 238 og var smíðaður í Vestmannaeyjum 1921.


456. Gissur Hvíti ÍS 114. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.




548. Halldór Sigurðsson ÍS 14. © Úr safni Heimis Tryggvasonnar.






01.02.2012 18:21

Fyrsta veiði Gyllis ÍS

Hér eru skemmtilegar myndir af fyrstu veiðiferð Gylllis ÍS 461. Þessi ferð var prufuferð og varð aflinn heldur rýr eða einn ræfilsfiskur !! Eins og fram hefur komið hefur afli þessa skips heldur lagast síðan þessi prufutúr var farinn.

Gyllir ÍS prufaður fyrir afhendingu. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.





Afli dagsins !!

29.01.2012 18:46

Gamlar síldarmyndir

Hér eru tveir að koma fullir til löndunar á sumarsíldveiðum 1961. Ingiber Ólafsson var smíðaður á Ísafirði 1961 og er væntanlega splúnkunýr þegar þessi mynd er tekin. Sæfari er smíðaður í Þýskalandi 1960 og var einn af mörgum systurskipum sem komu til landsins. Hann fórst í róðri á Barðagrunni 9. janúar 1970 með allri áhöfn 6 mönnum.

601. Ingiber Ólafsson GK 35. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.
207. Sæfari BA 147. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.


25.01.2012 17:04

Venus í ballanseringu

Nú er unnið að því í  Reykjavíkurhöfn að koma andveltitanki fyrir á togaranum Venusi sem HB-Grandi gerir út. Skipið var í slipp þar sem það var málað og yfirfarið. Venus er eitt af spánarskipunum svokölluðu og hefur honum verið breytt töluvert frá því hann kom nýr til Hafnarfjarðar sem Júní GK 345 þann 3. júní 1973.


1308. Venus HF 519. © Magnús Jónsson

Allt ný málað.

Veltitankurinn.

Kominn fyrir framan brúnna.

24.01.2012 18:08

Aflaskipið Gyllir ÍS (Stefnir ÍS)

Nýlega voru fréttir af tveimur metlöndunum hjá skuttogaranum Stefni ÍS 28. Þá var verið að tala um aflaverðmæti eins og gjarnan er raunin í dag. Þessar myndir sýna hins vegar góð aflabrögð hjá sama skipi sem þá hét Gyllir ÍS 261 frá Flateyri. Skipstjórar á Gylli þá eru enn á fullu stími, annar þeirra er Grétar Kristjánsson frændi minn frá Súðavík sem er skipstjóri á frystiskipinu Gnúp GK frá Grindavík. Hinn er Páll Halldórsson skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS.

Trollið komið inn á dekk með góðan afla. © Myndir úr safni Heimis Tryggvasonar.

Þá er bara að koma þessu niður á millidekk.
Þá á bara eftir að slægja þetta og ísa í kassa !!

Allt smekkfull hjá köllum.

23.01.2012 16:20

Þekkja menn þennan, og hvað er í gangi ?

Þetta er Gyllir ÍS 261 frá Flateyri. Myndirnar eru teknar í Þýskalandi árið 1986 þar sem hann var í vélarupptekt. Einnig var settur skrúfuhringur á hann. Svo var skipt um hálfan toggálgann, byggt yfir ganga og settur nýr dekk krani.


Gyllir ÍS 261 í slipp í Þýskalandi. © Úr safni Heimis Tryggvasonar.





22.01.2012 09:06

Birnirnir

Árið 1992 fór ég að læra bifvélavirkjun hjá Jóni Guðbjartssyni heima í Bolungarvík. Jón og Guðbjartur sonur hans voru þá nýbúnir að kaupa 57 tonna togbát sem fékk nafnið Gunnbjörn ÍS 302. Baddi var skipstjórinn og Jón útgerðarstjórinn. Við á verkstæðinu sáum um ýmislegt sem gera þurfti hjá útgerðinni, allt frá því að landa afla uppí að rífa gírinn frá til að skipta um kúplingslegu.

1686. Gunnbjörn ÍS 302 óbreyttur. © Hafþór Hreiðarsson.

 Eftir nokkur ár í eigu þeirra feðga var ákveðið að gera breytingar á bátnum og fór hann til Póllands árið 1996 þar sem hann var lengdur og breikkaður. En hann var ekki mjög lengi í þeirri útgáfu því þær voru aðeins hugsaðar sem skref í rétta átt.


1686. Gunnbjörn ÍS 302 eftir fyrstu breytingu. © Hafþór Hreiðarsson

Árið 2000 fór skipið svo aftur út og þá var það lengt enn meira, hækkað og sett ný brú á það ásamt nýrri vél og öllu tilheyrandi. Það má því segja að 1686 sem nú heitir Valbjörn ÍS 307 sé nánast allt annað skip en það var í upphafi.


1686. Gunnbjörn ÍS 307 eftir aðra breytingu. © Ingólfur Þorleifsson.

1686. Valbjörn ÍS 307. © Ingólfur Þorleifsson.
1686. Valbjörn ÍS 307 siglir inn til Bolungavíkur. © Bjarki Friðbergsson.

En eins og glöggir lesendur hafa séð var skipt um nafn á skipinu og ástæðan var sú að árið 2007 kaupa þeir feðgar gamla Framnesið ÍS af Hraðfrystihúsinu-Gunnvör í Hnífsdal og fær það nafnið Gunnbjörn ÍS 302. Gamli Gunnbjörn fékk skráninguna ÍS 307 en hélt nafninu fyrst í stað, en fékk svo nafnið Valbjörn ÍS 307.


1327. Gunnbjörn ÍS 302. Ex Framnes ÍS 708. © Ingólfur Þorleifsson.

1327. Gunnbjörn ÍS 302. © Ingólfur Þorleifsson.

Bæði skipin voru gerð út á bolfiskveiðar þar sem rækjuveiðar höfðu legið niðri að mestu leyti í nokkur ár. En þegar rækjan fór að veiðast aftur voru skipin fljótlega komin á rækju. Þeir feðgar kaupa svo þrotabú rækjuverksmiðjunnar Miðfells á Ísafirði og leggja skipin upp þar hjá nýja fyrirtækinu sem fékk nafnið Kampi. Skömmu fyrir síðustu jól bættist svo nýtt skip við sem er í eigu Birnir ehf og Kampa ehf og fékk það nafnið Ísbjörn ÍS 304 og er 1000 tonna rækjufrystiskip. Skipið er væntanlegt til heimahafnar á Ísafirði fljótlega og mun halda á rækjuveiðar í febrúar. Það er því óhætt að segja að útgerð þeirra feðga hafi stækkað úr 57 tonnum í tæp 2000 á 20 árum.


2276. Ísbjörn ÍS 304. © Magnús Jónsson.




20.01.2012 09:34

Stutt í að Ísbjörn komi vestur

Nú er búið að fá varahluti í Ísbjörn ÍS og hann kominn aftur upp í slipp í Reykjavík. Á þessum myndur má sjá lóðsbáta aðstoða skipið í sleðann í Reykjavíkurhöfn. Einnig má sjá skrúfuna og öxulinn á vörubílspalli. Skipið heldur svo vestur til Ísafjarðar og er áætlað að það hefji veiðar í febrúar n.k.


© Magús Jónsson.






18.01.2012 11:39

Lotna kaupir bát frá Færeyjum

Útgerðarfyrirtækið Lotna ehf sem gerir m.a. út frá Flateyri hefur fest kaup á yfirbyggðum Cleopatra bát frá Fuglafirði í Færeyjum. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum seint á síðustu öld og seldur úr landi, en er nú kominn á Íslenska skrá í fyrsta skipti. Held að það sé rétt hjá mér að engin Cleopatra 28 sé yfirbyggð hér á landi heldur aðeins 38 bátarnir.



Una FD 200. © Magnús Jónsson.




15.01.2012 20:36

Haldið í fyrsta túr á nýju ári

Magnús Jónsson var á höfninni í Reykjavík 2. janúar s.l. þegar skip voru að legja upp í fyrstu veiðiferð ársins 2012.

2184. Vigri RE 71. © Magnús Jónsson.

2740. Vörður EA 748. © Magnús Jónsson.

12.01.2012 21:18

Satt og logið um Gitte Henning

Á skipasíðu nokkurri þar sem fróðleikur er einkunarorðið er nú boðið uppá frétt um Danska uppsjávarskipið Gitte Henning.L 349. Þar er mynd af skipi sem sagt er vera núverandi Gitte Henning smíðuð 2008. Það er ekki rétt því myndin er af þar síðasta skipi sem bar það nafn. Það skip heitir nú Veronica D 95 og er skráð á Írlandi. Nýja skipið sem er jú frá 2008 er hins vegar mun stærra en það sem sést á téðri mynd. Fréttin sem er úr fiskifréttum segir hins vegar frá því að nú eigi að endurnýja Gitte enn á ný og verði nýsmíðin stærsta fiskiskip dana.


Gitte Henning L349 smíðuð árið 2000. Mynd af heimasíðu útgerðarinnar.

Hér er svo Gitte Henning sem byggð var 2008. Mynd af heimasíðu útgerðarinnar.

Hér sést svo munurinn á skipunum tveimur. Mynd af heimasíðu útgerðarinnar.

11.01.2012 19:01

Haldið til loðnuleitar

Hér eru myndir af hafrannsóknarskipinu Árna Friðríkssyni RE þar sem hann er að leggja úr höfn til loðnuleitar í síðustu viku. Erfiðlega gékk í lok síðasta árs að finna loðnu í veiðanlegu magni. Þar hafði veður mikil áhrif á leitina og lágu mörg skip m.a. inni á Ísafirði í 3 sólarhringa vegna brælu. Nú hefur loðnan hins vegar fundist fyrir austan land og eru skipin byrjuð að moka henni upp.


Sleppa !!. Myndir Magnús Jónsson.
Landgangurinn losaður.

Bakkað frá höfninni.

Og haldið af stað.

09.01.2012 16:55

Tveir eins sem komu nýir til Vestfjarða

Hér koma tveir bræður sem eiga það sameiginlegt að hafa komið nýjir til Vestfjarða frá Noregi þar sem þeir voru smíðaðir. Þessi skip voru smíðuðí Flekkefjord og komu 6 eins skip til Vestfjarða. Þau voru Bessi ÍS til Súðavíkur, Framnes ÍS til Þingeyrar, Gyllir ÍS til Flateyrar og svo Guðbjörg ÍS, Guðbjartur ÍS og Júlíus Geirmundsson ÍS til Ísafjarðar. Júlíus var fyrstur af þessum skipum, og fyrsti skuttogari Ísfirðinga og kom 5 desember 1972 til Ísafjarðar. Það verða því 40 ár í vetur frá komu hans. 

1285. Hét nýr Júlíus Geirmundsson ÍS 270 og var gerður út frá Ísafirði til fram til 1979 er hann var settur upp í nýjan Júlla og seldur til Noregs aftur. En mánuði seinna var hann aftur seldur til Íslands og í þetta skiptið til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Bergvík KE 22. Hann var svo seldur til Sauðárkróks og fékk þá nafnið Skagfirðingur SK 4 sem hann ber á þessari mynd. Það var svo fyrir 20 árum sem hann var seldur til Noregs í annað skiptið, eða 1992. 

1451. Hét nýr Gyllir ÍS 261 og kom nýr til Flateyrar 1976 og var gerður þar út þar til han var seldur á Ísafjörð, og er enn í fullri drift hér fyrir vestan og heitir Stefnir ÍS 28 og er gerður út af Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru Hf.


1285. Júlíus Geirmundsson ÍS 270 kom nýr til Ísafjarðar 5. desember 1972. 
© Mynd af  www.bb.is
1285. Skagfirðingur SK 4. © Mynd úr safni Heimis Tryggvasonar.

1451. Gyllir ÍS 261. © Mynd af  www.bb.is

1451. Stefnir ÍS 28. © Ingólfur Þ.

07.01.2012 14:37

Páll Pálsson ÍS fyrr og nú

Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir. Páll Pálsson verður 40 ára á þessu ári eins og síðuhaldari. Hann hefur fengið andlitslyftingu eins og flestir vita. Í þeim breytingum var m.a. sett pera á skipið og sést munurinn á þessum myndum.

Páll Pálsson við bryggjuna í Hnífsdal. © Úr safni Heimis Tryggvasonar

Hér er hann perulaus í slipp.

Hér er peran klár til að hengjast á.

Hífð á sinn stað.

Og hér er hún í baráttu við Atlantshafið út af Deild í Ísafjarðardjúpi. © Guðbjartur Ástþórsson.
Flettingar í dag: 144
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 488
Gestir í gær: 203
Samtals flettingar: 694415
Samtals gestir: 205515
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 11:11:27
Flettingar í dag: 144
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 488
Gestir í gær: 203
Samtals flettingar: 694415
Samtals gestir: 205515
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 11:11:27